|
|
02.10.2007 21:28:56 / irisbegga
jæja margt hefur nú drifið á daga mína síðan ég bloggaði seinast. Það gengur bara þokkalega í skólanum, mætti vera duglegri, en getur maður ekki alltaf gert betur, finnst manni. Við fórum í sjóferð í sjáfarlíftækni og sóttum okkur allskonar sjávardýr sem við skoðum svo bakteríurnar úr þessa önnina í verklegu.Lífefnafræðitilraunirnar eru bara búinar að vera skemmtilegar, fékk t.d 20L af notaðri olíu úr vinnunni til að nota í lífdísel tilraun hehe skondið. Ræktin gengur bara vel, fer alla virkadaga og er búin að missa svona 3 cm að meðaltali allstaðar um líkamann bara ánægð með það. Ég fór í brúðkaup núna 22 sept til Örnu, saung þar eitt lítið lag í kirkjunni, með þér, sem er eftir Bubba Morteins. Og flutti ræðu í veislunni með silju. Arna og Bjössi  Ég og Allan
Svo átti ég afmæli núna 28 september, og var þá einmitt sprellmót í skólanum, æðislegur dagur, tók þátt í bjórhlaupi, þar sem að maður klæddi sig í ullarsokka á höndum og fótum drakk skot, borðaði kókosbollu og drakk bjór  
Ég, Jón Ingi, Halldór og Villi
bara snildar dagur, eftir þetta fóru ég, mamma, amma og silja út að borða á Strikinu og fékk ég afmælisköku með stjörnublisi og fullt af ókunnugufólki sem var á strikinu söng fyrir mig afmælissönginn hehehehehehe. Eftir þetta fór ég í sjallan á seinnihluta sprellmótsins og svo í partý til konu sem heitir Ásdís og var mikið fjör þar, sungið, dansað og áfengi sem gékk um. Mjög langt síðan ég hef lent í jafn skemmtilegu partýi Svo var haldið á kaffi ak í smá stund. ég entist þar ekki lengi því maður var nú búin að fá sér í glas síðan 2 um dagin heheeheh. Svo hélt ég upp á afmælið mitt á laugardaginn, eiddi öllum deginum í að versla inn áfengi og mat og þrífa/undirbúa heima og taka mig til. Var með jager master bollu í afmælinu gegggjuð hehehe, svo var ég með Ostasalat, heitanrétt, flögur og dýfu og auðvitað pínu nammi. Það var bara stuð í afmælinu, fékk fínar gjafir, þar á meðal bol, brók(eins og ég er að safna) frá Röggu og kötu, Naflalokk frá Hafdísi, Flott kerti frá söndru G, rósir frá Guggu og Heiðrúnu og frá Björgu fékk ég svona hvítvínsflösku sem er eins og köttur í laginu Bara brjálað fjör og svona, fórum svo niður í bæ, þar sem að silja keyrði á mann á leiðinni, en ekki henni að kenna því þessi maður stundaði það víst þetta kvöld að reyna að verða fyrir bíl, fíflið. Fórum fyrst á kaffi ak og það var bara fínt en okkur langaði svo bara í sjallann og fengum við bara frítt inn, segi ekki afhverju gott að hafa sambönd hehehe. En ég, Heiðrún og Sandra skemmtum okkur bara vel þar og dönsuðum slatta, enduðum samt seinast korterið á kaffi ak og eitt það besta við kvöldið var að ég eiddi ekki krónu, sandra drifer, frítt far heim fram og til baka, frítt í sjallann, og sandra og Heiðrún buðu mér báðar á barnum, ohhhhh takk elskurnar híhí fyrir æðislegt kvöld allar saman. 
»
03.09.2007 14:31:43 / irisbegga
hæhæhæ loksins er netið og talvan komin í lag og ég get byrjað að blogga aftur. Þakka Sóla fyrir hjálpina, því annars væri ég ekkert með netið núna  Það sem er að frétta af mér er að ég er byrjuð í skólanum aftur, þeir sem ekki vita er ég á 2 ári í Líftækni í HA. Mér lýst bara mjög vel á þetta og hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan. Er í lífefnafræði og það er snild því við erum bara 4 í tíma, verð að segja að mér finnst það bara mjög þæginlegt. Einnig er ég í Sjávarlíftækni sem ég veit ekki hvað mér finnst um því ég missti t.d af tímanum í dag því ég er orðin veik, með kvef,hálsbólgu og eyrnabólgu, er ekki sátt við það. Þjóðhagfræði veit ég heldur ekkert hvað mér finnst um, gæti verið skemmtileg en erum að byrja hægt í henni en förum á fullt eftir svona 3 vikur eða svo. Eðlisfræði leggst bara vel í mig, er búin með 2 áfanga í vma, veit að nokkrir í bekknum hafa ekki tekið neina eðlisfræði þannig að ég stend allavegna vel svona til að byrja með. Svo er það Group project, sem átti að vera leiðinleg forritun út í gegn en sem betur fer breyttist það. Sem sagt erum við líftæknin saman í hóp að vinna að verkefni sem tekur báðar annirnar. Verkefnið er um Orkulíftækni, sem sagt á mannamáli er þetta um orkugjafa sem geta komið í stað bensíns, eins og vetni, etanól og metanól. Ég held að þetta sé ótrúlega sniðugt verkefni og hjálpar okkur í líftæknini að finna svona betur út hvað líftækni línu maður hefur áhuga á. Þetta er stórt verkefni og undirbýr mann öruglega undir stóra lokaverkefnið á 3 ári. Annað sem er í gangi hjá mér er breyttur lífstíll, er samsagt byrjuð í hollustunni á fullu, er byrjuð að borða minna í einu og oftar. Er að minnka brauð, gos og nammi. Og lifi á skyrboosti, hollu áleggi á hrökkbrauð, á kvöldin er það oft fiskur eða kjúklingur og mikið af grænmeti með því og svo er það ávextir og vatn svona á milli stærtu máltíðanna. Er byrjuð í átaki á fullu og fer í body combat mán, mið og föst og svo body pump á þri og fim. Þannig að ég hef program til að fylgja alla vikuna og er sko búin að vera drepast úr strengjum heheheheh. Svo er ég ekkert að vinna á virkum dögum því ég ætla að einbeyta mér vel að skólanum og vinn bara svona sirka aðrahverja helgi. Verð nú að fá moninga til að borga af bílnum, borga tryggingar af honum, borga netið og bara til að lifa. Er búin að djamma pínu undanfarið, fór t.d með Mörtu og enduðum við í heitarpotta eftirparty, geggjað hehe. Svo höfum við Sandra G farið 2 sinnum og fórum á papana um helgina og var það bara frekar gaman   Ég og lilla   Svo er þetta nýlegasta myndin af elskunni hennar Silju
»
01.07.2007 20:54:35 / irisbegga
hæhæhæhæhæh
Vááááá hvað það er langt síðan ég bloggaði hehehe.
Ég er bara búin að vera vinna eins og brjálaðingur í Leiru nesti
í sumar, er að fá útborgað á morgun get ekki beðið.
Ég fór á bekkjarmót 23 júní og var bara mjög gaman. Rosalega
gaman að hitta alla krakkanna og sjá svona hverjir voru búinir að
breytast og hverjir ekki hehehhe. Maður talaði bara mikið við fólk
sem maður talaði kannski ekki mikið við í grunnskóla, fékk að
kynnast nokkrum bara í fysrsta skiptið hehhe. Við fórum í bjór
kynningu og fórum svo á Mela í hörgárdal. Fórum í rúbbí og
skotbolta, miklar mynningar úr þeim leikjum í grunskóla bara
almennt. Við fengum öll svona bönd sem stóð eitthvað sniðugt á, ég
fékk "ohhhh sandy baby" en fyrir ykkur sem ekki vita lék ég sandy í
grease í 9 bekk tíhí.
Silja systir er komin norður til að eiga babeið, og mig hlakkar
geggjað til, ég fæ að vera viðstöd fæðinguna    en hún er
skráð inn 12 júlí. ég búin að nota tíma mikið í að strjúka bumbuna
og finna spörk og tala og syngja við bumbuna því ég vil að barnið
þekki nú írisi frænku þegar það kemur í heiminn  

Er hún ekki sæt hehehe  komin 36 vikur á myndinni en í dag er
hún komin 38 og 3 daga

Hér er ein mynd af bekkjarmótinu
»
17.04.2007 15:57:15 / irisbegga
hæhæ, langt síðan síðast.
Um helgina var aðalega unnið og þars sem að söngvakeppnin var
haldin á akureyri og eitthvað skíðamót var í hlíarfjalli, var
brjálað af fólki í bænum og klikkað að gera í vinnunni, úfffffff.
En ég var búin að vinna klukkan 21:30 á laugardeginum og kíkti
beint til röggu og horfði á söngvakeppnina, minns bara frekar
stoltur af gamla skólanum sínum hehe. En svo fór ég heim og tók mig
til fyrir djamm, ofcours hehe. Og ég og sandra g fórum til
Heiðrúnar og þar var Magga líka. Það var aðeins drukkið og svona og
svo fórum við niðrí bæ það var röð fyrir utan alla skemmtistaði
þannig að ég og sandra fórum á 1929 of Heiðrún og Magga fóru á
kaffi ak. Að þeirra sögn var ekkert það margir inni á kaffi ak
þrátt fyrir röðina sem var fyrir utan, þeir hafa örugglega verið að
telja inn á staðinn vegna fjöldatakmörkunar. En ég og Sandra
skemmtum okkur bara vel á 1929, þar sem var spiluð House tónlist og
staðurinn troðfylltist um 3 leitið. Svo hittum við líka
bekkjabræður okkar Markús og Jón inga og voru þeir hressi að vanda,
sérstaklega jón þar sem hann var öruglega búin að fá sér aðeins og
mikið í aðra tánna hehehe.
fyrsta prófið mitt er 30 apríl og seinnast er 10 maí þannig að
það verður gert voða lítið annað en að læra næsta tæpa mánuð.
þannig að það verður kannski lítið um blogg á næstunni.
En hún systir mín er víst ólétt eins og flestir vita og er komin
rúmlega 6 mánuði á leið, hún kom norður um páskanna og fékk ég að
finna barnið hreyfa sig geggjað sætt hehe
Ef þið viljið skoða bumbumynd af henni getið þið kíkt á þenan
link
http://pic60.picturetrail.com/VOL1671/8701688/16115374/246365421.jpg
»
10.04.2007 22:17:47 / irisbegga
Nenni ekki að blogga í dag þannig að ég
fann sniðugan texta um menn í
staðinn.
Karlmenn eru eins
og:
Strætó
.. Þó þú missir af einum, þá kemur bara næsti
Blandari
í eldhúsið .. þú þarft að hafa
einn, en ert ekki viss til hvers
Auglýsingar
.. þú getur ekki trúað einu orði sem þeir segja
Tölvur
.. erfitt að átta sig á þeim og hafa sjaldnast nægjanlegt
minni
Kælibox
.. fylltu þá af bjór og þú getur farið með þá hvert sem
er
Ljósritunarvélar
.. þú þarft þá til að fjölfalda, en þar með er það
upptalið
Krullujárn
.. þau eru alltaf heit og alltaf í hárinu á þér
Íslenski
fjármálamarkaðurinn .. so óskaplega lengi að
þroskast
Stjörnuspár
.. segja þér hvað þú átt að gera og hafa yfirleitt rangt fyrir
sér
Gluggaveður
.. gaman að horfa á en ekki mikið meira
Maskari
.. hverfur við fyrstu merki um tilfinnalegt
uppnám
Bílastæði
.. þau bestu eru nú þegar frátekin og þau sem eru eftir eru fyrir
fatlaða eða eru einstaklega lítil
Poppkorn
.. það veitir þér fullnægju en aðeins í skamman
tíma
Snjóstormur .. þú veist aldrei hvenær hann er að koma, hversu
margir sentimetrar það verða né heldur hve lengi hann mun
endast
Notaðir
bílar .. auðvelt að eignast, fyrir lítinn pening og
óáreiðanlegir
Sumarfrí
.. þau virðast aldrei vera nógu löng
Veðrið
.....ekkert er hægt að gera til að breyta því
Hraðbankar
.. um leið og búið er að taka út, hefur þú engin not fyrir hann
lengur
Banani
.. því yngri sem hann er því stinnari er hann
Smokkar
.. einnota drasl
Fleiri Staðreyndir um karlmenn
1. Eina ástæða þess að karlmenn eru til er sú að titrarar geta
hvorki dansað né heldur keypt drykki.
2. Það er allt eins gott að ná sér bara í yngri menn. Þeir þroskast
hvort sem er aldrei.
3. Karlmaður sem getur klætt sig upp án þess að líta út eins og
krumpuð útgáfa af Forrest Gump er örugglega
hommi.
4. Karlmenn eru allir eins. Þeir eru bara með ólík andlit svo við
konurnar getum þekkt þá í sundur.
5. Skilgreining á hugtakinu piparsvein: Maður sem missti af því
tækifæri að gera konu óhamingjusama.
6. Ef karlmaður spyr þig hverjar séu uppáhaldsbækurnar þínar þá
skaltu hiklaust svara: "Bankabækur"
. 7. Allir karlmenn eru skapaðir jafnir. Því
miður.
8. Ef karlmaður spyr þig hvort hann sé sá fyrsti sem þú hefur sofið
hjá, þá skaltu svara: "Ég býst við því, ég kannast eitthvað við
þig."
9. Karlmenn eru eins og súkkulaði; sætir og stefna alltaf beint á
mjaðmirnar.*
Brandarahornið:
Hvað þarf marga karlmenn til að skipta um
klósettrúllu? Við vitum það ekki, þetta hefur aldrei
gerst!
Af hverju er svona erfitt að finna karlmenn sem eru yndislegir,
umhyggjusamir og flottir í útliti og vexti ?
Vegna þess að þeir eiga allir kærasta
!!
Af hverju eru giftar konur þéttari í holdum en konur sem eru á
lausu ?
Þegar sú sem er á lausu kemur heim og sér hvað er í ísskápnum,
lokar hún honum og fer í rúmið, en þegar sú gifta kemur heim sér
hún hvað er í rúminu og fer í ísskápinn
!!
Hvernig færðu karlmann til að gera maga-æfingar ?
Settu fjarstýringuna á milli tánna á
honum!
Hvað sagði Guð þegar hann hafði skapað manninn
?
Ég hlýt að geta gert betur !!
Hvað sagði Guð þegar hann hafði skapað Evu ?
Æfingin skapar meistarann!
Karlmaðurinn spurði Guð:
"Af hverju gerði þú konuna svona fallega ?" Guð svarar: "Svo þú
getir elskað hana". En Guð, spyr karlmaðurinn aftur. "Af hverju
gerðir þú hana svona vitlausa?" Guð svarar: "Svo hún geti elskað
ykkur karlmenn"
Af hverju ráfaði Móses um eyðimörkin í 40 ár ?
Vegna þess að hann vildi ekki spyrjast
vegar!
»
30.03.2007 14:39:15 / irisbegga
vildi bara svona í tilefni kvöldsins setja inn mín spá fyrir
ungfrúnorðurland
Ég held að Birna bolla vinni þetta og svo eru 3 aðrar stelpur
sem mér finnst að gætu lent í sæti, þær eru Dagbjört, Íris og
Arna
1.hvað heitir
þú?
2.hvað ertu
gamall/gömul ?
3.ertu á
lausu eða föstu?
4.hvaða
tónlist hlustaru mest á?
5.hvað er
það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð
mig?
6.hvaða 5
hlutir minna þig á mig?
7.ef ég
myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndiru
svara?
8.hvað
finnst þér skemmtilegast að gera?
9.hver er
?Idolið? þitt?
10.hvern
þykir þig vænst um?
11.ertu
ástfanin/n ?
12.hefuru
verið ástfangin/n ?
13.Hver er
heitasti skemmtistaðurinn í dag?
14.ætlaru að plögga þessu á
síðuna þína svo ég geti svarað þessum spurningum hjá
þér?
»
27.03.2007 17:14:14 / irisbegga
hæhæ
...... hummmm, það hefur ýmislegt drifið á mína daga.
Til dæmis horfði ég á 2 seríu af Grey´s anatomy á 3 dögum hehe,
það er að segja 9 þættir á dag að meðaltali Ég elska þessa
þætti, þetta eru bestu þættir í öllum heiminum Ég held að ég hafa
aldrei hlegið jafn mikið af ´neinum þáttum og aldrei í lífi mínu
grátið jafn mikið. Seinasti þátturinn í seríunni var svo góður,
maður var bara svo hamingjusamur og svo ótrúlega sorgmæddur, ég
grét sko með ekkasogum´í bæði skiptin sem ég horfði á hann. Þeir
sem hafa horft á þessa þætti vita sko hvað ég er að tala um. Er að
downloda 3 seríu núna, get ekki beðið eftir að hún komi inn .
Ég og Ragga fórum á myndina 300, verð að segja að hún er
geggjuð, er sko að fíla hana í botn, og sumar stelpur vilja ekki
fara á hana því hún er stráka mynd, þá eru þið klikkaðar því þetta
er bara stór mynd sem allir ættu að sjá, og það er náttúrulega stór
kostur að mennirnir í myndinna æfðu í 8 mánuði fyrir myndina og eru
þeir geðveikt flottir og það er sko hægt að slefa yfir þeim hehe
.
Á laugardaginn var farið á djammið ég og hafdís fórum á kaffi
ak fyrst, þegar við vorum að dansa svona 5 á dansgólfinu labbar
einn gaur upp að mér og spyr mig hvort ég sé ekki að taka þátt í
fegurðarsamkeppninni, hehehehehehe ég bara neeeee. Svo voru
einhverjir portúgalir á dansgólfinu og 2 af þeim dönsuðu við okkur,
snéru okkur í marga hringi, það var æði, það var eins og þeir væru
atvinnudansarar eða eitthvað, allaveganna skemmtum við okkur
konunglega að dansa við þá hehe. Svo skelltum við okkur í
sjallann á sálina, það var bara frekar gaman ég og hafdís vorum
við barinn niðri á sjallanum, vorum að fá okkur eplaskot og þessi
menn byrja að tala við mig og spurja um beltið sem ég var með,
allaveganna spjölluðum við um stund og ég spyr manninn hvort hann
ætli ekki að bjóða ökkur í glas, þá segir hann við mig, ertu
einhver dræsa eða, ég bara uuuuu það varst nú þú sem að byrjaðir að
tala við mig og ég var að gef þér ráð, þú gætir allavegnna boðið
okkur í glas í staðinn, hann bara uuu já mjög skömmustulega.
þvílíkur rugludallur En svo hitti ég Gumma sem er vinur hans
Einars minns fyrverandi, við töluðum alveg heillengi saman og
dönsuðum. Hef ekki skemmt mér svona vel í sjallanum lengi.
Á sunnudeginum fór ég, Ragga og Hafdís í bíó á the hitcher, hún
var bara þokkaleg, eingin stórmynd en bara góð. Hún er alveg frekar
skerí, mér brá allavegnna frekar mikið nokkrum sinnum 
UUUUU eins og sumir hafa kannski tekið eftir er ég búin að
skipta um skoðanakönnun, málið er bara þannig að ég kæri mig
voðalega lítið um fólk sem að hatar mig, er örugglega ekki ein um
það. Ég fór bara að hugsa, mér finnst bara að fólk sem hatar mig
eigi engan rétt á því að setja sitt mark á síðuna mína, þannig að
ég breytti könnunninni. Ég er sjálf svona manneskja sem hatar
engan, það hefur alveg komið fyrir að fólk hefur gert mikið á minn
hlut, en ég hata ekki þessar manneskjur, það er til eitthvað sem
heitir að fyrirgefa og að láta hluti ekki fara í taugarnar á sér.
Mér finnst fólk sem að hatar einhver vera sýna mikin óþroska, og
sérstaklega í þessu tilviki þar sem að maneskjurnar sem hata mig
þekkja mig ekki neitt, hata mig fyrir ekki neitt, ég hef ekki gert
þeim neitt. Sumir eiga sér bara ekkert líf, eru að eyða tímanum í
að hata einhver sem að þær þekkja ekki, skoða síðuna mína til þess
eingöngu að gleðjast yfir mínum óförum, vitið þið ég kæri mig ekki
um ykkur á síðunni minni, ekki er ég alltaf að gramsa í ykkar
málum, eins og þið í mínum, ég þekki ykkur ekki þannig að bara
látið mig endilega í friði, ég veit alveg hverjar voru að kjósa að
þið hatið mig. Að þið skulið virkilega eyða orkunni í að hata, sem
er bara heimskulegt. Þið getið ekki átt ykkur mikið líf fyrst að
þið eruð að skoða síðuna mína reglulega, velta ykkur upp úr mínum
málum, spá í hverjum ég sé að hitta, gleðjast yfir því þegar ég er
sorgmædd, vitið þið, þið eruð bara virkilega illgjarnar og
óþroskaðar þar sem þið eruð eldri en ég. Er það virkilega svona
æðislegt í ykkar augum að ég og Þorsteinn séum ekki að hittast
lengur, segjandi haha dömpaði hann henni, uuuuu bara svo þið viti
það vorum við ekki saman, þið eruð bara að reyna búa til meira úr
einhverju sem var ekki til staðar til að reyna gleðjast yfir
einhverjum óförum hjá mér. heheheheheheheheheh þið eruð sorglegar,
lifið lífinu hættið þessu bulli.
»
19.03.2007 16:44:10 / irisbegga
jæja já, Helgin var bara mjög fín hjá mér, var að vinna á
föstudagin til 9, hitti svo Röggu og Heiðrúnu. Við rúntuðum mest en
stukkum inn á Capone og kaffi ak líka, bara mjög fínt kvöld að mínu
msti. Á laugardaginn var farið með mömmu út að borða á greifanum,
bara svona af því að hún átti afmæli um dagin og ég var að vinna og
við vorum ekki búin að gera neitt til að halda upp á það. Svo eftir
það fór ég til Heiðrúnar og rúntuðum við til svona 1 leitið,
ætluðum á '80 ball en vá það var eingin þar þannig að við kíktum á
1929 á svona fantasie kvöld, þar voru tvær súlur og eitt búr og
voru 3 stelpur að dansa og taka fólk og kenna þeim, frekar fyndið.
Fékk mér bara 1 drykk var nefninlega að fara vinna dagin eftir. Það
kom mikið af fólki á 1929 og var alveg hevý góð tecnó, house
tónlist, var að fíla mig í botn Það var einhver gaur sem að
horfði á mig alveg geggjað lengi og kom svo og sagði við mig: Váá
mér finnst ég þekkja þig einhverstaðar frá, ertu nokkuð gellan sem
að æfa í átaki, hehe, ég bara uuuuuu jú ég er ð æfa þar. hann
eitthvað ég er búin að vera horfa á þig geggjað lengi, vissi að ég
hefði séð þig einhverstaðar áður. En þetta kvöld var alveg geggjað,
þorði ekki að fá súlu kennslu því ég var svo edrú eitthvað hehe en
hefði verið gaman að prufa.
En ég ákvað að setja inn myndir af 2 konum og 2 körlum sem mér
finnst vera fallegasta fólk í heimi. Það sem mér finnst skipta
mestu máli er útgeilsunnin og hvernig persónutöfrarnir alveg skýna
í gegn. Þetta fólk er sko gott dæmi um það. Þetta er ekki þetta
týpíska fólk sem maður heyrir að sé fallegast, en þetta er kannski
einhverjar manneskjur sem gleymast svolítið, en mér finnst þetta
fólk standa verulega upp úr í fegurð.
Marisa Tomei

Brittany murphy

Jude Law

Matthew McConauhey: kynþokkafylsti
maðurinn árið 2006

Langar líka að setja inn nokkrar myndir af mér
og vinkonunum 

Silja, Arna og Dagný

Björg og Hafdís

Ég og Ragga

Sandra g

Ekki allir viðbúnir við myndartöku hehe

Hehe sætar svona hlægjandi Heiðrún, Arna og Dagný

Ragga og Guðbjörg

»
16.03.2007 14:17:49 / irisbegga
hæhæ
Vil bara byrja á því að þakka öllum sem voru svona dugleg að
kvitta hjá mér á seinustu færslu.
Það sem er að frétta úr skólanum er ég að leggja loka hönd á
sjálfsræðaverkefninð mitt í örverufræði. Er búin að hafa mjög gaman
að því að vinna svona mikið á tilraunastofunni. Í þessari viku er
ég búin að vera gramlita og gera kvikleikapróf, sem þýðir að ég var
að athuga í smásjá hvort að bakteríurnar myndu synda.
Ég og Ragga fórum í bíó í gær á Norbit, hún er víst ekki búin að
vera fá góða dóma, en mér fannst hún helvíti fyndin og vitlaus
hehe. Svo Rúntuðum við aðeins og áttum mjög djúpar samræður saman.
Alltaf gott að getað tala við einhvern sem skilur mann, enda höfum
við Ragga lent í ýmislegu og fáránlegu í sambandi við karlmenn,
gaman að rifja upp og hlægja bara af þessu öllu saman. Verð að
segja að ég og Ragga erum bara frekar sammála í öllu ef ég fer að
hugsa um það, allaveganna svona almennum málefnum.
Er búin að vera svolítið veik, alltaf hóstandi og sjúandi upp í
nefið hehe, ekki að þið vilji eitthvað vita af því.
Er búin að vera svolítið sorgmædd seinustu daga, það sprakk
sprengja í vinahópnum mínum og ég veit ekki hvort að hlutirnir eiga
nokkurntíma eftir að vera samir Það eru stór orð búin að falla
hingað og þanngað á milli fólks. Einhver segir eitthvað og það fer
til 3 manneskja áður en maður heyrir það og sagan og orðin eru
algjörlega breytt. Ég meina eingum neitt illt en einhvernvegin
kemur það alltaf út þannig, þetta er ekki í fyrstaskiptið. Ég er
ekkert fullkomin og segja sumir að ég é frekar hrokafull á köflum,
en ég geri mistök, en það skal eingin segja að ég elski ekki
vinkonur mínar, því ég geri það. Ég er bara svona manneskja sem
vill tala um hlutina og hefur það komið mér rækilega um koll. Fólk
er byrjað að fyrirgefa hvor öðru en ég veit ekki hvernig traustið
er núna, örugglega ekki gott.
 
»
11.03.2007 11:34:54 / irisbegga
hæhæ
frábær helgi, á föstudaginn átti Hafdís afmæli og eyddum við
kvöldinu heima hjá örnu og borðuðum og spiluðum póker, geggjað
gaman, ég tapaði hehe en hafði bara gaman af. Svo fórum við Hafdís
á kaffi ak og dönsuðum mikið. Sáum svo röggu á rúntinum og fengum
far með henni heim eftir rúnt.
á laugardagskvöldinu fór ég til evu og var þar jóna og svo kom
Inga huld í pínu stund og svo kom Auður freyja skvísa . Ég, Auður
og Eva töluðum mjög lengi eða næstum því til 3 hehe, þá fór ég og
Auður niður á 1929 í froðudiskó. Það var bara frekar gaman verð ég
að segja. Kvöldið endaði samt skrautlega t.d var Jói vinur minn
barin af einhverju ógeði og brotnaði í honum tönn. Ég og Auður
biðum eftir leigara heill lengi rennandi blautar og kaldar en
eingin leigari kom. Einhver gaur stoppaði fyrir okkur og fengum við
far heim. Reyndar varð ég pínu smeik þegar hann var búin að skutla
Auði heim og ég var ein með honum og hann sagði við mig á þann veg:
á ég ekki bara að koma heim með þér og hlýja þér, ég sem var ekki
búin að drekka mikið varð frekar vandræðileg en náði að koma mér út
úr þessu hehe.
Sú skemmtilega frétt er sú að ég og Þorsteinn erum totaly over.
Ekki vinátta þar á bæ einu sinni. Málið var þannig með vexti að
hann Þorsteinn varð svona skyndilega kaldur við mig um dagin, ég er
ekkert glær vissi í hvað stemdi. Vissi að það myndi gerast fyrr en
seinna að hann fengi leið á að sofa hjá mér og myndi nú
örugglega sjást með einhverja aðra upp á armin, var að vona að það
gerðist seinna, en í gærkvöldi á 1929 var Þorsteinn að halda í
höndina á einhverri stelpu, en hún fer og Þorsteinn var áfram.
Þegar ég kem heim, sendi ég nú guttanum sms, hummm, ég er kannski
vond en ég vil endilega deila með ykkur öllum seinustu orðum okkar
Þorsteins til hvors annnars.
Íris: Hvað vildi stelpan ekki fara heim
með þér eða?
Þorsteinn: Nei ég er bara einn
heima.
Íris: Var bara að spá hvað gerðist við
stelpuna sem þú varst að halda í höndina á.
Íris: er ég bara old news´
Þorsteinn: Ekkert kjaftæði, fór ekkert
heim með þessari gellu, ég er bara heima núna bitra manneskja

Íris: Veistu Váááá myndi maður
einhverntíman segja við einhvern "bitra manneskja" og svo eftir
á. Ertu algjörlega tilfiningalaus. Ég hélt við værum pínu vinir. En
greinilega ekki. Þú ert bara player og ég vona að þú sért bara
hamingjusamur með þín hlutskipti. Ég virkilega hélt að ég væri að
kynnast gáfuðum og skemmtilegum strák en þú náðir að afsanna það.
Þú ert greinilega heilalaus player og veistu ég
væri sko miklu betur komin af án þín (barnið
þitt)
Íris: P.s Þú ert leim í rúmminu.
Sjálfselska fífl.
Þorsteinn: Hei! Farðu bara að sofa og
láttu renna af þér......
Íris: Bara svo þú vitir það er ég ekki það
full eftir 3 bjóra.
Þorsteinn: Oki, hafðu það þá bara
gott....
Ég viðurkenni alveg að ég snappaði þegar
hann kallaði mig bitra manneskja, Ef ég skoða þetta svona aftur var
ég mjög grimm við hann. ég var kannski orðljótari en hann, en það
var hann sem að hunsaði mig og var bara kominn með einhverja gellu
upp á arminn, sem mér fannst mjög sárt að sjá því ég hef nú
tilfiningar, ég er mennsk. Ég held að hann hafi ekki trilst við mig
eftir mín orð af því að hann vill ekkert drama, vill halda
mér rólegri.
En vitiði ég er ekki að nennu þessu með gaura, voða hrifnir af
mér fyrst, en einhvernvegin helst einginn hrifin af mér, í öllum
mínum samböndum hefur mér verið sagt upp eða bara sameigileg
ákvörðun, hvað er málið með það. Og þeir segja allir við mig
að ég sé svo æðisleg og eigi allt gott
skilið, að allir yrðu heppnir að fá að vera með mér, að
ég ætti ekki að vera í vanda að ná mér í hvaða gaur sem er
(nema þá greinilega). Þegar maður er hrifin eða ásfanginn af
einhverjum vill maður ekkert hvaða strák sem er ef strákurin sem
maður er hrifin af er ekki á listanum. Bara strákar svo þið vitið
það þá eru þessi orð ekki hughreistandi, heldur hafa þau öfug
áhrif. maður hagsar, ef ég er svona æðisleg af hverju vill hann mig
ekki, ef ég á að vera svona mikill fengur af hverju vill hann
mig ekki. það meikar ekki sens að hætta með einhverjum og segja
svona.
Ég held bara að Þorsteinn sé kominn á svo kallað hórutímabil sem
sumir taka, eða flestir, hef ekki tekið mitt enþá, en hann verður
ekki hamin í bráð, þarf greinilega að hlaupa af sér hornin. Sumir
menn ná aldrei að hlaupa þau almennilega af sér, ég segi bara
greyið þeir því það á bara eftir að koma í bakið á þeim seinna.

The Eight Qualities Of A Perfect
Husband
»
27.02.2007 17:05:48 / irisbegga
hæhæ
Ég fór suður á fimmtudaginn með Heiðrúnu og Röggu, við fórum á
mínum bíl. var ferðinn bara þokaleg. Var alls ekki óþolinmóð á
leiðinni því maður var nú í bíl með skemmtileum manneskjum 
Ég gerði margt skemmtilegt fyrir sunnan, t.d fór á djammið með
silju, mörtu og dagnýju á föstudaginn, fórum á Hressó, svaka stuð.
vorum frekar fullar. Einhver ítali var alltaf að dansa við mig og
reyna við mig. Ég skildi náttúrulega ekki mikið sem hann sagði
hehe. Einnig var minn fyrverandi Bjössi á staðnum ekki beint
vinir hehe. En hitti Einar líka, sjallaði svolítið við hann. Dagný
var frekar mikið ölvuð, og braut hún tvö glös og skarst ég aðeins
hehe ekkert merkilegt. bara frekar skrautleg kvöld. Einnig datt
Dagný killiflöt á dansgólfinu. En þetta reddaðist allt saman, ég og
Dagný fengum okkur að borða á Nonnabita og löbbuðum svo til
silju.
Á föstudeginum var ég með söndru frænku og fórum við í
Smáralindina með börninn, Dagbjörtu og Stebba. fengum okkur ís og
skoðuðum í búðir. Ég keypti mér 3 boli í söru og einn bol og eina
peysu í Debenhams. Einnig keypti sandra sér kjól fyrir árshátíð og
peysu.
Ég, Silja og Ragga fórum í kolaportið á laugardeginum og einnig
í kringluna. Ég keypti mér mittisleður belti í kiss . Svo fór ég
og Ragga á Amerikan style. Eftir það kíktum við í Adam og Evu, og
keyðti ég mér sexy neta sokkaband sett, sem er gjeggjað hehe.
Um kvöldið fór ég, silja og Heiðrún á Glaumbar, var bara frekar
mikill stemmari, en ég var pínu þreytt eftir kvöldið áður hehe, um
4 leitið fórum við á devitos pizza staðinn og fórum heið til silju
og borðuðum þar, geggjar pizzur.
Á sunnudeginum var farið á KFC og eftir það fengið sér álfheima
ís og svo í bíó á myndina The number 23. húner sko góð finnst mér.
Eitthvað svo sérstök, myndi sko ekki lílja henni við neina mynd.
Jim carrey var æðislegur í henni, ég tók sko eftir því hversu hot
hann getur verið váhvað hann var sexy í einu kynlífatriðinu,
hehe.
Á mánudeginum fór ég með Silju og Gumma í sónar, það væri
æðislegt, barnið er sko algjör dúlla, frekar fíngert finnst mér.
Það er með efrivörinna frá silju alveg greinilega, hehe. ég er svo
spennt fyrir að þetta barn kemur í heiminn.
Heimferðin var frekar skemmtileg fannst mér, mikið talað um mjög
fuðulega hluti hehe, Heiðrún og Ragga vita hvað ég er að tala um.
Ég er bara mjög sátt við þessa ferð.
»
17.02.2007 12:44:06 / irisbegga
hæhæ
jæja, vikan var fín, er orðin
frísk. Það sem hefur drifið á mína daga er t.d á miðvikudaginn
fórum við Þorsteinn í bíó á The Perfume. Þessi mynd er svona mynd
sem ég mæli með, er ekki geggjuð en bara einhvernveginn góð á sinn
hátt. Það er mikið að gera í skólanum núna, þar sem ég er í 8 daga
tilraun. Er t.d í skólanum núna, er að fara að lesa á tilraunaglas,
athuga um vöxt. Er nefninlega að rannsaka kúaskít hehe. Er í
skólanum og vinna þessa helgi, bara ekkert frí, fór reyndar til
örnu eftir vinnu í gærkvöldi en gat ekki stoppað lengi þar sem ég
þurfti að mæta hingað í skólann kl 8-3 og svo vinna 4-12 svo er
tölfræðidæmi og rekstrarhagfræðipróf á morgun úfffff og klára
skýrslu sem á að skila á þriðjudaginn. Stundum er ekki svo létt að
vera í skóla. En nóg af þessu.
Er bara einhvernveginn
hamingjusöm, sem er æðisleg tilfinning það er gott að líða vel í
sínum eigin líkama bara vera ánægður og stoltur af sjálfum sér.
Mér finnst einhvernveginn eins og mín unglingsár hafi farið
svolítið mikið í tilfinninga rugl og á tímabili fann ég mig
einhvernveginn ekki. Ég læt sko ekki fara með mig eins og skít
undir skónnum á neinum lengur. Núna hef ég vit til að átta mig nógu
fljótt hverjir eiga ekki heima í mínu lífi og bara slít því um leið
í stað þess að láta tilfiningarnar fara með mann í gönur og bara
einfaldlega stjórna manni. Á tímabili var ég orðin svo bæld
tilfinningalega vegna tilfiningalegs áfalls sem ég varð fyrir af
völdum stráka og var bara hætt að tjá mig við alla, vinkonur mínar
og meira segja við mömmu og silju. En núna er ég bara opin og
finnst ekki eins og ég sé ekki að íþyngja neinum þegar ég ræði
við þá bara um mig. Vá hvað mér líður vel með það að eiga góða vini
sem mér líður vel í kringum og get talað um allt við þá.
Takk Silja, Arna, Ragga, Heiðrún,
Hafdís fyrir allt 

»
13.02.2007 23:37:28 / irisbegga
jæja er bara
veik heima með djöfulsins blöðrubólgu. Voðalega er fólk
lélegt við að kvitta hjá mér allaveganna er ég að reyna að
vera dugleg að blogga en enginn kvittar.
Þetta fann ég á einni
síðu á mínu blogg vappi. Hver kannast ekki við þetta að eigin
reynslu eða bara heyrt af svona eða lent í einhverju líku þessu.
allaveganna kannast ég við það að karlmenn byðja mann um að koma
með sér heim að kúru og svo er reynt meira. Ótrúlegir sumir
karlmenn. En þetta eru samt bara vissar týpur sem eru svona 5-10%
karlmanna.

Hæ sæta, viltu ekki koma, heim með mér,
Bara að kúra, því ég er svo skotin í
þér. Ég á risastórt rúm,
það besta sem til er. Ég mun ekkert reyna,
vil bara að þú vaknir, við hliðiná mér.
Jú kanski kyssa, og aðeins
strjúka, fyrst við erum nú hér.
Láttu ekki svona, þú deyrð varla kona, þó þú verðir
alsber. Hlyptu mér niður,
ég skal vera góður, og fullnægja þér. Glenntu í sundur, þetta verður undur-, -samlegt með
mér. Og ég þarf ekkert
smokk, ég lét tjékka á mér, í desember.
Nú skaltu öskra, sjúga og sleikja kynfærin á
mér.
Þetta er allt í lagi, enginn veit,
það sem enginn sér. Já kyngdu, og ég
lofa,að segja engum, að ég hafi riðið þér. Æ sleppt'essu væli, þú færð ekkert að
leggjast, á mitt koddaver.
Og ekki hringja, ég vill ekkert sjá þig
hér.
Þú lítur út fyrir að hafa verið svívirt af heilum
her. Svo lyktarðu eins og
ígulker. Það er ekkert
hægt, að breyta því, sem orðið er.
Sættu þig við það, þú ert bara enn ein talan
fyrir mér.
Ég laug öllu saman, til að komast
í snertingu, við nárann á þér. Mér er
alveg sama, um þig, og hver vænting þín
er. Ég elska sjálfan
mig: hér er ég um mig frá mér...
En í lokinn eru svona töff myndir
   

kynþokkafull
sexy, sexy sexy. Þetta er
alvöru maður 
En bara endilega kvitta elskurnar mínar   
»
12.02.2007 23:44:21 / irisbegga
Love`s when . . . . you miss him
even before he leaves. When
you
could listen to
him talk all night and
never get
tired of hearing his voice
When just the sound of his
name
sends chills down your
spine
and you see his
smile
the second you
close
your
eye
s
.!.
hæhæ
æðisleg
helgi að baki Á fösudagskvöldið fór ég á bjórkvöld stafnbúa með
Söndru og Arnheiði bara mjög gaman, frír bjór og svona. Eftir
það fór ég með Þorsteinni og nokkrum vinum hans á Capone, þar voru
fáir en mjög gaman samt.
Silja systir
kom um helgina og á laugardeginum fórum við og keyptum afmælisgjöf
handa örnu, er bara mjög stolt af því sem við gáfum henni,
leðurstígvél, geggjaðar brækur og íþróttabol Við ætluðum að mæta
snemma í afmælið hennar örnu en töfðumst við að setja strípur í
hárið á Silju, hehe.
En afmælið
var æðislegt, fullt af skemmtilegu fólki og allir skemmtilega
fullir eftir afmælið fórum við á Capone og dönsuðum eins og
brjálaðingar hehe. Þorsteinn kom svo á capone rétt fyrir lokunn,
greyið klemdi sig og foss blæddi, kíktum á sjúkrahúsið, en þetta
var ekki eins slæmt og þetta leit út fyrir að vera, sem betur
fer.
Á
sunnudeginum vaknaði ég bara hjá Þorsteinni og horfðum á dvd mynd
og fengum okkur hamborgara á hamborgarabúllunni. Um kvöldið
slappaði ég bara af upp í rúmmi og horfði á Grays anatomy,
geggjaðir þættir.
»
06.02.2007 17:06:27 / irisbegga
»
Síður: 1 2 3
|
|